Hugleiðslur

 
 
MALA_GOOD.jpg

Djúpslakandi hugleiðsla

Í þessari hugleiðslu leiðir Laufey þig í inn í tuttugu mínútna hugleiðsluferðalag þar sem markmiðið er að ná líkamlegri djúpslökun ásamt innri kyrrð og ró. Komdu þér vel fyrir í liggjandi stöðu, lokaðu augunum og leyfðu huganum að kyrrast. Laufey spilar undir á hörpuna sína til að leiða þig dýpra inn á við.

 

 
gong_good.jpg

FRÁ HVIRFLI TIL ILJA

Rebekka Rós leiðir þig í gegnum einfalda líkamsskönnun sem byrjar frá hvirflinum og færir þig alla leið niður til ilja og tilbaka. Þessi hugleiðsla er leið fyrir þig til að kyrra hugann og beina honum í ákveðna átt. Þessi leið hentar vel þegar tíminn er knappur og þig vantar úrræði til að losa um streitu og ná slökun. Góð hugleiðsla fyrir svefninn.

 

 
GONGSTERS.jpg

Inn í kyrrðina

Hér leiða Laufey og Rebekka saman krafta sína þar sem Laufey leiðir hugleiðsluna og Rebekka spilar á töfragongið sitt. Þessi hugleiðsla er tilvalin fyrir þig fyrir svefninn þar sem Gong tónheilun tekur við af leiddri hugleiðslu.